laugardagur, desember 23, 2006

Hó hó Hótel Mamma og Axel

Aldeilis. Búin að vera hér á ylhýra í 6 daga og rokið hefur ekki lægt. Ég hef ekkert komist almennilega út úr húsi, eins og tildæmis í göngutúr eða svo. Bara út í bíl, inn í Kringlu eða aðrar mætar verslanir og verslunarmiðstöðvar og aftur til baka. Nú mega jólin alveg koma með smá logn sem fyrst. Ég er búin að gera allt sem ég ætlaði mér fyrir jól nema skreyta á heimilunum mínum tveimur og svo eru bara eftir nettar sósialiseringar eins og gengur. Búin að halda upp á mömmuafmæli, fara í toro, hitta Kvennóskvísos, kaupa jólatré (meira að segja tvö!) og dunda mér við föndur og búðarráp. Svo hef ég nú líka gert ýmislegt óvænt eins og til dæmis að fara í sneiðmyndatöku á bakinu og syngja í sextugsafmæli Guggu skólastjóra sem var mjög skemmtilegt. Það hefur komið í ljós að það vill mig enginn næsta ár, það er að segja engin óperudeild í Bretlandi, svo það var ágætis búst að syngja fyrir brosandi fólk sem virtist jafnvel vera hrifið af söng minum. Það er því ofarlega á verkefnalista jólanna að finna út úr því hvað í andsk ég á af mér að gera næsta ár. En fyrst höldum við jól. Gleðileg jól!