Gleðilegt nýtt ár og takk fyrir gömlu! Ég er sko að passa hattinn!
Afsakið, smá einkahúmor! Gamlárskvöldið mitt var spes, svo ekki sé meira sagt. Við borðuðum vel blóðuga nautasteik í kvöldmat, sem ég kastaði upp skömmu síðar. Maginn greinilega ekki alveg sáttur við svona stórt stökk úr fljótandi fæði yfir í baulandi... Það er annars gaman að segja frá því að það er ekkert mál að láta taka úr sér efri endajaxlana :o) Skaupið fannst mér betra en oft áður, ég hló mun meira en venjulega, enda fast skotið á okkur Frónverja. Við horfðum svo á flugelda frá Kópavogskirkju og börðumst við vindinn! Við Eva gátum næstum lagst afturábak og látið vindinn halda okkur uppi, frekar skemmtilegt! Við vorum rétt komnar til baka þegar Helga hringdi og sagðist vera á leiðinni!! Við systur framkvæmdum áramótakraftaverk og máluðum okkur, greiddum, skiptum um föt og löguðum til á mettíma. Á sama tíma hringdi fullt af fólki sem allt ætlaði að koma með hinn og þennan vin með sér, svo við áttum von á svaka stuði. En það fór aldeilis öðruvísi!! Við fengum 5 gesti! Fyrst 2, svo 2, svo 1 sem komst ekki heim fyrr en rúmlega 6. Eins gott að við flýttum okkur að gera okkur voða fínar :o) En það var voða notalegt að spjalla við gestina og við vorum fegnar að þurfa ekki að fara út í óveðrið. Hér má sjá okkur á hlaupum við sætgerninguna, ég að setja á mig sólarpúður og Eva á sprettinum inni í herbergi:

<< Home