föstudagur, ágúst 22, 2008

Ekki starfsmaður dagsins

Langt því frá! Mætti stutt í morgun og fór svo úr vinnunni. Gleymdi óvart að stimpla mig út, æ-æ! En þessa ferð mátti alveg fara á launum svosem, þar sem henni var heitið til tannlæknis. Það tók sig nefnilega aftur upp leiðindaverkurinn frá því í vor og við það mátti aldeilis ekki una. Heimsóknin til tannsa var... spes... Hann potaði og skolaði og blés og pikkaði og hvað þetta nú heitir allt en fann ekkert að mér. Hann náði sér svo í rafstuðgræju, frá fyrri hluta síðustu aldar af útlitinu að dæma, til að athuga hvort tönnin væri nokkuð bara dáin. Tennurnar kipptu sér mun minna upp við þessa græju en taugarnar, en eitthvað þó, svo ekki fékkst niðurstaða úr því. Svo tók hann myndir og þóttist jafnvel geta greint einhvern skugga við eina rót, en samt ekki nóg til að fara í major aðgerðapælingar. Þá datt honum í hug að ná sér í aðra fornleifagræju til að hita upp einhvern dims sem hann ýtti svo á tönnina, til að athuga hvernig hún brygðist við hita sjáiði til! Svo virkaði græjan ekki svo hann notaði bara kveikjara. Jájá, þetta var orðið ansi skrautlegt! Sérstaklega í ljósi þess að maðurinn er með umbúðir um 3 fingur vegna brunasára... En tönnin sem á heima í 3-6 (já, ég er sko down with the dental-lingo eftir þetta maraþonþukl!) var ekkert að gefa neitt upp um orsök vandans. Ég bað bara til allra góðra vætta að það væri ekki sprunga í henni, því eins og tannsi sagði: Ef það er sprunga í henni þá er Plan A að draga tönnina. Ég þorði ekki að spyrja hvað Plan B var. Að lokum náði hann í kollega sinn sem er eldri og reyndari í tannpyntingum. Sá fann auman blett um leið (því þér er lagið að lát' aðra þjást...) og að lokum var bara skorufyllt, ekkert bor, og búið! Mikið var ég glöð!!

Undir lok tímans vorum við farin að hlusta á leikinn, sem lofaði strax góðu. Ég brunaði svo í vinnuna og þar hlustuðum við frammi á gangi, ég og eini læknirinn á svæðinu. Það hringdu nokkrir sjúllar á meðan, allt eldri konur Í Fyrsta Gír, að velta fyrir sér hvort mögulega væri hægt hérna kannski að skoða möguleikann á því að ef til vill fá tíma hjá -hvað heitir hann aftur þarna- karl-lækninum... og já er 28. mánudagur eða bíddu já það er kannski best að ég nái í dagbókina mína, hvar er nú penni? Það er óhætt að segja að það hafi verið heldur grunnt á þolinmæðinni þessar mínútur og bið ég frúrnar hér með afsökunar á því. Síðustu 5 mínúturnar fékk síminn samt bara að hringja og sjúklingur doksa fékk að bíða frammi á gangi, því við urðum að heyra hvernig færi. Svo þarf auðvitað ekkert að orða það neitt meir, bara snilld!!

Og nú sit ég bara og blogga, enda er NÚNA rólegt á símanum! Það er eins gott að ég er að fara að hætta, annars yrði ég örugglega rekin ;o)




ps.Hversu mikið þarf stúlka að reykja/búa í ljósabekk til að þurfa Botox jafngömul mér?? 22 ára??!?! Ég á ekki til orð.