Jæja elskurnar. Nú er ég aldeilis búin að taka mér langt blogg-frí, alveg óvart. Málið er ekki það að ég hafi ekki haft neitt að segja heldur er ég bara búin að vera svo helvíti bissí. En fyrst mamma er farin að kvarta yfir því að þynnkuyfirlýsingarnar séu orðnar svolítið þreyttar er víst tími til kominn að fara að tjá mig eitthvað... Elsku mamma, þetta er handa þér ;-)
Og hvað er ég búin að vera að gera svona mikið? Ja, maður spyr sig. Vinna og syngja og læra l'italiano og bara eitthvað að bertast svona eins og gengur. Smá djamm, eitt barnaafmæli, ein bíóferð, uppgötvaði leyndan hæfileika... ekkert krassandi svosem. Bíóferðin var einmitt farin í fyrradag og er ekki í frásögu færandi nema hvað ég myndi vilja benda rússnesku leyniþjónustunni á að í borg sem er full af Lödum er ekki sniðugt að aka um á gljáfægðum bensum. Nothing undercover about that. Og bíómyndagerðarmönnum vil ég benda á að bílaeltingaleikir mega alls ekki vera lengri en 3 mínútur. Annars held ég að fæst orð beri minnsta ábyrgð og læt þetta duga í bili, ég er nefnilega mjög upptekin við að skoða tónlistarháskólaheimasíður.

<< Home