sunnudagur, september 19, 2004

Við systur ákváðum að vera góðar við okkur í tilefni þynnkunnar og fá okkur djúsí KFC máltíð. Eva fór og keypti matinn; 2 twistera og franskar, en þegar heim var komið sá hún að hún hafði ekki fengið franskarnar. Hún hringdi í KFC og þá sagði gellan: Já, strákurinn las meðalstór Pepsí á skjánum í staðinn fyrir meðalstór franskar... ??? What? Hvernig muna þau þetta þegar bílaröðin er endalaus? Og af hverju fengum við þá ekki Pepsí? Heldur fólk að við séum fífl? En við fengum franskarnar sendar heim og maís og Hraun svo allir eru sáttir og saddir. Góð saga ha? ;-)