þriðjudagur, september 14, 2004

Ákvað að drífa mig í pump í gær þrátt fyrir endalaust mikið kvef og hálsbólgu. Frábær tímasetining á veikindum, en þetta tilheyrir víst á haustin ef maður vinnur með börnum. Allavega, ég hafði ekki farið í pumpið í þvílíkt langan tíma þar sem sumarvinnan mín var eiginlega næg líkamsrækt fyrir mig, svo ég bjóst við gífurlegum átökum. Tíminn var erfiður en ekki óbærilegur svo ég var nokkuð sátt við það. Það sem ég er hins vegar ekki sátt við er að ég er ekki með snefil af harðsperrum í dag! Ég var búin að njóta þess að kvíða fyrir óþægindunum sem fylgja vitneskjunni um að hafa tekið vel á því en nei.... það er eins og ég hafi ekki gert neitt erfiðara í gær en að spila á píanó :-( Þetta þýðir bara eitt. Þyngja á morgun!