laugardagur, janúar 29, 2005

Steingeitin er varkár og hagsýn en Hrúturinn aftur á móti hvatvís og fljótfær. Það gæti gert Steingeitina órólega, en Hrúturinn hefur aftur á móti litla þolinmæði með seinagangi Geitarinnar. Samband milli þessara tveggja merkja einkennist af hæðum og lægðum og í því verður aldrei nein lognmolla. Í samstarfi og viðskiptum bæta þau hvort annað einkar vel upp.

Hvatvís? Fljótfær? Lítil þolinmæði? Er verið að gantast í mér? Reyndar svolítið til í þessum hæðum og lægðum... ;-)

...og svo bara upp á gant:

Hrútur og Tvíburi eru alltaf að þræta, en það er kannski meira í nösunum á þeim, því báðir eru fljótir að fyrirgefa og gleyma öllum rifrildum. Þessi tvö merki laðast yfirleitt hvort að öðru og finna til sterkrar samstöðu. Hjónabandið gæti orðið gott, því báðum finnst hinn aðilinn skemmtilegur, spennandi og indæll, en hrútnum gæti þótt kynlífið heldur leiðigjarnt og tvíburinn of málglaður í bólinu!

hahahahahahaha! Er þetta rétt Ólöf mín? Ertu að nota munninn á vitlausan hátt?