þriðjudagur, maí 17, 2005

Á morgun rennur upp langþráð stund. Ég leggst undir hnífinn og læt gera á mér smávægilega aðgerð sem mig hefur lengi langað í. Já gott fólk, ég er að fara í sílíkon.
Loksins verð ég kona með konum og get státað af stórum og flottum brjóstum. Ég geri mér nefnilega fullkomnlega grein fyrir því að allt sem hefur misfarist í lífi mínu er undan sömu rótum runnið: Litlu brjóstunum. Þau eru ástæðan fyrir því að ég fékk 5 í vélritun á stúdentsprófi, að ég komst ekki strax út í söngnám, að ég þurfti að taka bílprófið tvisvar, að ég lenti í bílslysi og augljóslega eina ástæðan fyrir því að ég er hvorki með hring á fingri né sameiginlega forsjá yfir ryksugu.
Frá og með morgundeginum verður líf mitt gjörbreytt. Ég mun vakna brosandi á hverjum morgni og geisla af hamingju og lífsgleði. Ég mun fá launahækkun í vinnunni, fá endalaus tilboð um að syngja fyrir í stórum húsum víða um heim og finna draumaprinsinn áður en vikan er liðin. Framtíðin mun brosa við mér og mínum stóru brjóstum og við munum lifa hamingjusöm saman til æviloka. Og allt þetta fyrir aðeins 300 þúsund! Geri aðrir betur.