Halló! Er einhver heima? Nei, örugglega ekki... Meira að segja Eva er hætt að kíkja og þá er nú illt í efni.
En fyrir sjálfa mig (og kannski mömmu) er best að skrifa smá updeit.
Ég átti mikið gleðileg jól og áramót og mér leiddist eiginlega aldrei. Söng við brúðkaup og í stórafmæli svo ég gat nett haldið mér við, þó svo að Helen sé kannski ekkert upprifin yfir framförunum. HItti næstum allar mínar góðu vinkonur, spilaði Rommý, Trivial og Meistarann af miklum móð en drakk næstum ekkert áfengi og fór ekkert í bæinn! Þótti það pínu leitt en veit að ég var svosem ekki að missa af miklu. Eignaðist nýja vinkonu sem vill endilega kalla mig því skrýtna gælunafni mamma en er að öðru leyti alveg frábær. Svo kynntist ég tengdafamilíunni sem er meira og minna uppfull af tapsárum partýdýrum. En það eru væn partýdýr svo ég hef yfir engu að kvarta í þeim málum. Annars stóð ég bara á beit í konfekti og kökum, knúsaði mömmuna mína og hafði það náðugt.
Nú er ég komin aftur til Rottuborgar, en það verður stutt stopp í þetta sinn. Ég er efst á biðlistanum á bakdeildina á Stykkishólmi svo ég bíð bara eftir símtali þaðan og flýg þá um leið heim og leggst inn í amk 2 vikur. Ótrúlega mis að ég sé einhvern veginn í sömu sporum og ég var 1998, en samt gott að það verður eitthvað gert við þessu brjóskröskunarbulli.

<< Home