Já eins og áður sagði er ég á leiðinni á Stykkishólm. Það er auðvitað bæði gott og slæmt, aðallega gott samt. Það er augljóslega stórkostlegt ef bakið lagast, gott að geta frestað því aðeins að fara að skoða skóla og eitthvað til að sækja um í fyrir næsta vetur og það verður gott að koma heim aftur fljótlega. Nú er ég að undirbúa spítalaleguna af miklum móð, reyni td að ganga 10 þúsund skref á dag af því að læknirinn sagði að ég ætti að labba eins mikið og ég gæti. En sko, 10.000 skref! Það eru alveg soldið mörg! Ég labba alltaf í og úr skólanum og helling innan hans og eitthvað en það eru samt bara 4 þúsund og dagurinn að kveldi kominn (ég er sko með teljara í buxnastrengnum hahaha!). Svo ég er búin að fara í gönguferðir og eitthvað en þegar veðrið er ömurlegt eins og núna þá er eitthvað voða lítil stemmning fyrir því. Auk labbsins er ég alveg hörð í matarræðinu, borða bara lífrænt ræktað og engan sykur, hveiti, koffín eða áfengi. Engar áhyggjur, ég er ekkert á leiðinni að fara að breytast í hvað hún heitir þarna litla mjóa maníska danska konan sem á manninn með hreiminn, þetta er sko bara fram að heimferð. Mér finnst bara einhvern veginn líklegra að ég verði fljótari að ná mér og fljótari að losa mig við eitrið sem þeir ætla að sprauta inn í mig ef ég er nokkuð ´hrein´fyrir. Því miður þýðir það að ég get ekki kvatt liðið hér með því að fara alle sammen á barinn og ég get heldur ekki gúffað í mig súkkulaði til að láta mér líða betur með þetta allt saman. En... ég reyni að hugga mig við það að ég sé sannkölluð ofurkona með stálvilja á meðan ég stappa niður fótunum til að láta teljarann gefa mér fleiri skref.
föstudagur, janúar 12, 2007
Previous Posts
- Halló! Er einhver heima? Nei, örugglega ekki... Me...
- Hó hó Hótel Mamma og AxelAldeilis. Búin að vera hé...
- Bak og brestirEg ofunda hryggleysingja. Their geta...
- Lán í óláni í LondonKomst ekki áfram í aðra umferð...
- Stress? Hvad er thad?Thekki thad ekki... Fyrsta ah...
- Happy talkEg er otrulega hamingjusom thessa dagana...
- HVERNIG FINNST YKKUR THETTA???
- Ad segja eda thegjaThad er spurningin. Af hverju e...
- 2 vikum sidar... Sama dagI.Tofraflautan gekk vel, ...
- Opening night at the OperaJaja godir halsar. Eins ...

<< Home