Andar liðinna jóla
Á förnum vegi mínum í jólafríinu hef ég rekist á 3 fyrrverandi kærasta. Þeir voru allir frekar miklir kærastar, hver á sínum tíma og á mismunandi forsendum eftir því auðvitað, en svona 'alvöru' engu að síður.
Mér fannst svolítið gaman að taka eftir viðbrögðum mínum gagnvart þeim. Einn sá ég á Þorláksmessu með arminn utan um fallega stúlku og það fannst mér ótrúlega gaman að sjá. Ég stoppaði ekki til að spjalla, heldur hæ-aði bara, enda orkan svolítið þannig okkar á milli, en ég fann bara fyrir gleði fyrir hans hönd. En ég var reyndar pínu fegin að hafa sett á mig maskara áður en ég fór út það kvöldið :o) Annan hitti ég í Kringlunni, þar sem ég var ómáluð og tuskuleg, með fangið fullt af brjóstahöldurum. Hann var þar með konu og barni og við spjölluðum heillengi. Ég reyndi að mæla hann pent út og það rifjaðist ýmislegt upp fyrir mér gott og skemmtilegt, en það vakti engar sérstakar tilfinningar. Mér fannst bara rosalega gaman að hitta hann og komast að því hvað hann er að bralla í lífinu. Og mér var alveg sama þó ég liti illa út! Þann þriðja sá ég á tónleikum um daginn og fór alveg í hnút! Kannski tengist það því að við eyddum öllum síðustu jólum saman og það hefur ósjálfrátt rifjast upp fyrir mér núna. Eða kannski tengist það því að ég er enn með nett í maganum yfir því hvernig okkar samskiptum lauk. Allavega var það eina sem ég gat gert að brosa og segja: Þú ert kominn með skegg! Á táknmáli. Ég veit ekki!!?!? Það bara kom út! Sneri mér svo við og tók ekta bíómynda: Hvað var þetta?? á sjálfa mig ;o)
Mér finnst svo gaman þegar 'kerfið' tekur yfir, og sama hvað ég þykist vera mikill nagli kemur það upp um mig. Svo er líka gaman þegar maður sættir sig við og gleymir hlutunum alveg án þess að taka nokkuð eftir því.

<< Home