Smá stress
En ekkert mjög mikið. Á erfitt með að átta mig á því hverju ég þarf að pakka og hvað ég þarf að gera sökum koffínsjokks. Ekki góða sjokksins, heldur því sem fer aðeins of langt og verður bara óþægilegt. You know what I mean. Það er svona að skola kaffi niður með kóki... sniðugt!
Búin að gera allt sem til stóð í dag nema pakka og svo þyrfti ég helst að æfa mig aftur. Farin að hafa pínu áhyggjur af efnisvalinu, en það þýðir vist lítið að pæla í því núna. Veg bara upp á móti því með flottum kjól ;o)
Vann síðasta daginn minn í Lækningu í gær og var kvödd með brauði og knúsum, þetta sumar leið fáránlega hratt við símsvörun og tímapússluspil! Fer svo hálfan dag í nýju vinnuna á morgun fyrir flugið, svo það er eins gott að vera búin að pakka og strauja í kvöld. Þið verðið bara að skila húrra-hrópum til handboltastrákanna frá mér, ég hef ekki tíma til að fara í troðninginn að hylla þá í dag þó þeir eigi það sannarlega skilið þessar elskur.
Jájá, koffínið skín í gegn í þessari færslu. Það er aldeilis ástand á heimilinu, varla bloggað án þess að einhvers konar örvandi/slævandi efni hafi komið við sögu/varir. Ég skal reyna að vera edrú og allsgáð þegar ég skrifa ferðasöguna í næstu viku, vonandi verður hún góð.

<< Home