fimmtudagur, september 23, 2004

Eitt af því erfiðasta sem ég hef þurft að gera er að skrifa meðmæli um sjálfa mig. Ég er einmitt að því núna og það er hreinn hryllingur. Til að ljóstra frá smá leyndarmáli er ég að fara til London í nóvember að syngja fyrir. Ég þarf að senda umsóknir út núna um helgina og með þeim þurfa að fylgja meðmæli frá 2 aðilum, annars vegar söngkennara og hins vegar einhverjum sem þekkir my academic skills... Ég bað Guggu skólastjóra að gera það og var hún alveg boðin og búin en...hún bað mig að skrifa einhverja punkta sem hún getur unnið út frá. Hún segist ekki vera nógu sleip í enskunni blessunin. Þetta er þvílíkt erfitt! Mér líður eins og Kristjáni Jóhannssyni...á sterum...nýbúinn að fá gott í kroppinn...og bravó-hróp á Scala ;-) Fáránlegt að skrifa um sjálfa mig að ég sé dugleg og klár og eitthvað bladibla. Svo er það meðalvegurinn, ekki of jákvæð því þá heldur Gugga að ég þurfi maníulyf og ekki of neikvæð því þá lítur það illa út í umsókninni. ARG!!!