mánudagur, janúar 15, 2007

Groundhog day

Mér líður eins og ég sé að upplifa sama daginn aftur og aftur og aftur hér í Rottuborg. Það er alltaf dimmt, alltaf hvasst og endalaus rigning. Og ég einhvernveginn ekki alveg with it, endalaust utan við mig og skrýtin eitthvað. Kannski lyfin, vona það... frekar en snemmbúin og ótímabær elliglöp.

Ekki það, ég finn mér alltaf nóg að bralla. Fór með Stærðfræðisæberg í vísindasafn á laugardaginn og skemmti mér konunglega. Vantaði bara að vera með krakka með okkur, þá hefði mér liðið aðeins betur þegar ég hrinti skosku börnunum frá tilraunaglösunum. Það er samt alltaf gaman að hlúa að sínum innri nerði og rifja upp helstu eðlisfræðilögmálin. Það skemmdi heldur ekkert fyrir að ég labbaði 16 þúsund skref þann dag! Ég hef ákveðið að breskir læknar eigi ekki við að maður þurfi að labba tíu þúsund skref á dag, heldur 70 þúsund á viku. Það meikar miklu meiri sens. Um helgina prófaði ég líka að borða soðinn púrrulauk í morgunmat. Það er hreinn og beinn viðbjóður og ég mæli ekki með því við nokkurn mann sem mér líkar vel við. Ég las líka heila bók á rúmum sólarhring. Langt síðan það hefur gerst, en alltaf jafn hyggeligt að snuggla sig upp með góða bók undir teppi á meðan holdvotar rotturnar banka á gluggann.

Í dag var svo BYO áheyrnin sem ég kom aðallega hingað til að fara í. Hún gekk bara frekar illa þó ég segi sjálf frá. Ég var svo hressilega uppdópuð að ég var eins og fljótandi haus að syngja, engin tengsl við kroppinn sem er frekar slæmt fyrir söngvara. En eftir áheyrnina fórum við nokkrar saman í bíó á stórskemmtilega, helsúra mynd, Smokin Aces. Það jafnast sko ekkert á við yfirgengilegt tilgangslaust ofbeldi til að hressa sálina við.

Á morgun tekur svo við nýr dagur, blautur og dimmur að vanda. Endilega sendið mér nú smá snjó, mér sýnist vera af nógu að taka þarna heima.