sunnudagur, september 26, 2004

Ég var ekkert smá dugleg í gær! Fór í afmæli þar sem boðið var upp á frían bjór og fullt af fyllibyttum en ég var edrú! Skál fyrir mér :-) Ég gerði mitt ítrasta til að falla inn í bjórdrykkjuhópinn og það gekk bara vel, afmælisbarnið var allavega mjög hissa á því að ég ætlaði að keyra heim (reyndar var afmælisbarnið kannski ekki alveg besta vitnið...en samt). Ástæðan fyrir þessu hrikalega djammleysi mínu var tónleikasöngur í dag í Norræna húsinu, sem gekk furðu vel miðað við lítinn svefn og mikla reykinnöndun í nótt.
En aftur að afmælinu. Afmælisbarnið á sér eina mjög heita ósk. Sú ósk á aldrei eftir að rætast en samt finnst afmælisbarninu mjög gaman að láta sig dreyma um óskina. Og tala um óskina. Og tala meira um óskina. Og velta fyrir sér mögulegum og ómögulegum afleiðingum þess að láta óskina rætast. Geisp! ;-) En burtséð frá því var afmælið mjög skemmtilegt. Mér fannst sérstaklega skemmtilegt þegar stúlka ein dansaði fyrir mig erótískan dans. Þannig var að ég var að tala við manninn hennar. Bara að tala við hann nota bene, ekkert hársveifl eða augntillit eða égeraðreynaaðhöslaþighlátur... Þetta fór svona svaðalega fyrir brjóstið á stúlkunni að hún kom hlaupandi til okkar af dansgólfinu og ákvað að ná athygli unnustans með erótískum dansi. Henni tókst ætlunarverkið, hann var dolfallinn og ég hraðaði mér á brott rétt áður en ég sprakk úr hlátri. Ég mæli ekki með því að reyna að dansa eggjandi dans eftir 13 bjóra...það er ekki sexí, þó þér finnist þú vafalaust vera mjööööög heillandi og flott. Hvar er cameran þegar maður þarf á henni að halda? ;-)