Slá í gegn, slá í gegn...
Jájá nú er ég aldeilis búin að slá í gegn! Haldiði ekki að ég hafi verið í fyrstu frétt á RÚV í gærkvöldi... Við Jökull alveg svaðalega flott; hann hefur aldrei verið rólegri og ég gerði allt sem í mínu valdi stóð til að forðast myndatökumanninn. En það var nú samt minnst á mig, sérmenntaðan stuðningasaðilann... Haldiði að það sé? Nú bíð ég bara spennt eftir símtölum frá Markúsi Erni Antonssyni með starfstilboð ;-) Var reyndar að hugsa um að vera í bol sem á stæði nafn mitt og símanúmer og svo 'á lausu' á bakinu... svo hefði ég átt að taka góða söngrispu í leiðinni, svona til að stela senunni almennilega og auglýsa mig svolítið. Kannski næst.

<< Home