miðvikudagur, janúar 17, 2007

Eins og alþjóð veit þá er ég mikil hafragrautskerling. Hafragrautur er sko alveg málið á morgnana en maður fær fljótt leið á honum ef hann er alltaf eins. Ég hef þróað ýmsar útgáfur af honum í gegnum árin og jafnvel fengið fólk í lið mér til að bæta grautinn. Þannig var epla-og kanilgrautur lengi vinsæll, banana-og sesamgrautur líka og Axel bjó meira segja til jólahafragraut með piparkökum, mér til mikillar gleði. Í morgun fann ég svo upp nýja ljúffenga gerð, alveg óvart, þar sem ég stóð hálf sofandi við eldavélina. Þvílík snilld má ekki fara ónýtt í gröfina með mér, svo hér kemur uppskriftin:
Hafrar, vatn, smá salt, hörfræ (alveg bragðlaus greyin en nauðsynleg fyrir mallann), ein teskeið hunang, hakkaðar möndlur, rúsínur og létt sojamjólk. Eðalgrautur, þó ég segi sjálf frá, mæli með honum!

Annars er það helst í fréttum að ég er búin að láta stytta hárið mitt um heila tíu sentimetra. Brjálað spennandi líf hér í Rottuborg, ha?