mánudagur, janúar 22, 2007

Vond sköp

...eru allsráðandi þessa dagana. Ég er í vondu skapi af því að ég var að komast að því að ég kemst ekki á Stykkishólm fyrr en eftir tvær til þrjár vikur. Bölvans rugl. Ég skal þá bara vera að drepast hér í Rottuborg þangað til, bæði úr verkjum og aukaverkunum verkjalyfja sem virðast fara í haus, maga og einbeitingu frekar en bak.

Ég er líka í vondu skapi út í sjálfa mig fyrir að láta klippa á mér hárið. Hvað í ósköpunum á konubarn sem nennir aldrei að gera neitt í hárið á sér nema mis-há tögl að gera með hár sem lítur eins og krulluhjálmur sé það ekki fullt af efnum og sléttað með járnum og blæstri? Og hvað er hún að spá að fá sér þannig klippingu í landi þar sem aldrei styttir upp og þar af leiðandi getur ein ferð í skólann eyðilagt 20 mínútna vinnu. Tuttugu mínútur! Sem fara í að vesenast með hárið á mér!? Ég kenni verkjalyfjunum um... það er ekki í lagi með mig.

Ég var samt ekki í vondu skapi þegar ég kom úr bíó í gær. Fór á bestu mynd sem ég hef séð lengi, Pan's Labyrinth. Check it out if þið þolið blóð, snilld. Og ég er heldur ekki fúl yfir því að vera loksins að fara að hitta Beanie mína í hádegismat. Og aldeilis ekki fúl yfir því að vera loksins orðinn skjalfestur Karonina! Er búin að kaupa Anna Karenina til að lesa mér til um næstum því nöfnu mína, ætlaði reyndar að bíða með að lesa hana þar til á Stykkishólmi en þá gæti ég þurft að bíða lengi.

HRGMF!