föstudagur, febrúar 16, 2007

Walk like an Egyptian walking on sunshine!

Va hvad eg er buin ad hafa thad otrulega gott sidan eg meldadi mig her sidast! Evan min var hja mer i viku sem leid allt of hratt en vid skemmtum okkur konunglega. Hun kom med mer i songtima, vid forum a langa og kalda Messias tonleika (enn og aftur fyrirgefdu!), forum ut ad borda, indverskum thjonum til mikillar skemmtunar, og a djammid thar sem gaurarnir reyndu vid okkur i rodum, svo mikid ad vid forum bara heim til ad losna vid areitid... Erfitt ad vera saetar systur sko! Attum einn letidag sem vid eyddum vid lestur, sjonvarpsglap, spil og AT og eyddum odrum degi i lestum. Eg tok Evilin nefnilega med mer til Kirkcaldy, adallega til ad syna henni fegurd Skotlands en lika til ad fara i inntokuprof hja Fife Opera. Thad er skemmst fra tvi ad segja ad eg fekk eitt adalhlutverkanna i Juliusi Sesar og mun her med svara nafninu Kleopatra! Tek samt ekki i mal ad klippa og lita a mer harid... Vid forum til Edinborgar og skelltum okkur i tvofaldan turistastraeto og a stad sem heitir My dynamic Earth. Thar er haegt ad upplifa jardskjalfta og fara i timavel og skoda jokla og regnskogarigningu og fleira skemmtilegt. Skemmtilegast vid thann dag var samt thegar eg fekk sma koffinsjokk eftir ad drekka fyrsta kaffid mitt sidan i jolafriinu, eftir ad hafa drukkid halfan litra af koki og etid sukkuladikoku. Nett kreisi. Nu og svo var audvitad tekinn ofur-verzlunardagur! 6 klukkutimar takk fyrir pent og pokarnir verda ekki taldir a fingrum beggja handa.

Takk fyrir komuna elsku moose! Vona ad kaupin verdi ther god og gledirik ;o)

Nu er eg ein eftir i kjallaranum (duva!) og komin aftur i kaldan raunveruleika Rottuborgar med tilheyrandi eldamennsku og laerdomi. Kleopatra er stort hlutverk og thad eru faar aefingar fram ad syningum svo nu thurfa hendur aldeilis ad standa fram ur ermum! En thad er allt i lagi tvi ermarnar eru glaenyjar og valdar af litlu systur.